Glettni
Yndisleg gullkorn sem Haukur og Arna hafa látið út úr sér. Apríl 2010 Janúar 2010
Við að horfa á viðtal við forseta íslands, Ólaf Ragnar Grímsson. Þá segir Arna: Fyndið að tala svona, hann talar svolítið skrýtið.
Haukur: Mamma, mamma viltu ekki leita að súlunni?
Mamma: Hvaða súlu?
Haukur: Súlunni sem sýgur blóðið úr höfðinu.
Mamma: Ertu að meina Lús?
Haukur: Já, af hverju viltu ekki leita af henni?
Það hafði s.s. komið upp lúsartilvik á leikskólanum mánuðinum áður og foreldrar höfðu verið beðin um að kemba börnunum.
Ágúst 2008
Á leiðinni heim af leikskólanum spurði ég Hauk hvað hefði verið að borða á leikskólanum í dag. Haukur svaraði: "Kryddkjöt". Eitthvað fannst mér þetta nú skrýtið og fór því að spá. Fattaði svo að þegar eldað er hér heima og hann fylgist með þá söltum við matinn og hann spyr hvað er verið að gera, nú "krydda" hvað gat þetta þá verið annað en Kryddkjöt!
Mars 2008
Líða fer að páskum og Haukur er að spá í hverjir fái páskaegg. Síðan segir hann ákveðið amma fær ekki páskaegg því hún er ekki með typpi, mamma ekki heldur!
3. mars 2008
Haukur var með okkur úti að borða á veitingahúsinu Ítalíu. Haukur var að príla upp og niður af stól og mamma bað hann um að hætta. Ekki hætti sá stutti, þá sagði mamma að ef hann hætti ekki þá myndi stelpan skamma hann. Sá stutti leit upp og sagði "Þá gef ég henni bara reiðilegt augnaráð." Mamma spurði hvar hann hefði lært þetta þá sagði Haukur "Í íslensku". Ekki varð mamma minna hissa við þetta og spurði hvort íslenska væri kennd á leikskólanum, nei hún er kennd í "Ha skólanum" (ætli hann hafði ekki meint Háskólann sem hann hefur ekki ósjaldan heyrt talað um). Talandi um að vera kokhraustur strákur á 3ja aldursári.
Maí 2007
Vorum í Hagkaupum að versla og mömmu datt í hug að leyfa mér að máta sólgleraugu. Um leið og þau voru komin á nefið hvað í kútnum: "Nótt!"
Sama setning var notuð þegar hann kom heim frá dagmömmunni og fór inn í herbergið sitt að leika. Mamma hafði sem sagt gleymt að draga frá gardínurnar, kúturinn kom hlaupandi fram: "Nótt, nótt!"
