Um okkur

Nafn:

Haukur og Arna Gunnarsbörn

Afmælisdagur:

14. júlí 2005 og 3.apríl 2007

Staðsetning:

Ísland

Faðir:

Gunnar Einarsson

Móðir:

Hanna Dóra Másdóttir

Önnur vefsíða:

www.hannadora.com

Um:

Haukur var 3.460 gr. og 50 cm. þegar hann fæddist. Arna var 3.375 gr. og 52 cm.

Tenglar

Færslur: 2011 Janúar

19.01.2011 00:27

Skíðaferð til Akureyrar

Um helgina skellti fjölskyldan úr Hofslundinum sér til Akureyrar á skíði. Lagt var að stað eftir vinnu á föstudegi og náð til Akureyrar um kl. 23 sama kvöld. Við vorum í æðislega fínni íbúð og eyddum laugardegi á skíðum í Hlíðarfjalli og í að heimsækja vini og fjölskyldu fyrir Norðan. Sunnudaginn nýttum við til hins ítrasta í skíðamennsku, Haukur og Arna fóru í skíðaskólann. Klukkan þrjú hættum við í fjallinu drifum okkur að tæma og þrífa íbúðina, svo í sund í sex stiga gaddi, út að borða á Greifanum og svo var brunað í bæinn og náð heim rétt eftir miðnætti.

Það voru því miður ekki teknar nógu margar myndir í þessum spretti en ég skellti þeim örfáu í myndaalbúmið ef þið viljið skoða.
  • 1
Flettingar í dag: 12
Gestir í dag: 4
Flettingar í gær: 4
Gestir í gær: 1
Samtals flettingar: 53261
Samtals gestir: 19962
Tölur uppfærðar: 16.5.2012 18:54:02